Bilun í diskum

Bilun varð í gærkvöldi í diskastæðu blog.is, en á þeirri stæðu, sem er röð tölvudiska, eru geymdar myndir bloggara og ýmsar stillingar varðandi útlit bloggs þeirra. Á meðan viðgerðarmenn glíma við bilunina  hefur bloggið verið opnað að hluta, en hægt er að lesa textann í bloggfærslum sem stendur og sumar myndir birtast.

Sem stendur er ekki er vitað til þess að nein gögn hafi glatast, en þær myndir sem vantar og stillingar varðandi útlit munu væntanlega detta inn eftir því sem viðgerð miðar áfram.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Bloggið virkar og hefur virkað ótrúlega vel, bæði hvað varðar virkni og viðmót.  Takk fyrir mig.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 29.7.2008 kl. 10:53

2 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

er enn bilun?
Mér sýnist smámyndir vanta og útlitsstillingar eru  í rugli.

Kolbrún Baldursdóttir, 29.7.2008 kl. 13:13

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Tónlistarspilarinn okkar á ketilas08.blog.is datt út? Kemur hann inn aftur?

Vilborg Traustadóttir, 29.7.2008 kl. 13:24

4 Smámynd: Ketilás

Já það kemur eins og við höfum aldrei sett inn nein lög? VT

Ketilás, 29.7.2008 kl. 13:25

5 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Mér þætti vænt um ef þið gætuð gert útlitsmöguleikanna á blogginu virka. Alllavegana virkar sumarliturinn ekki þessa stundina.

Brynjar Jóhannsson, 29.7.2008 kl. 14:09

6 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Það er bara að vera þolinmóður! Ég vona að grunnliturinn verði eins og var, ljósgulur, sem gerið að stafirnir sáust.

En nú er grunnurinn rauð-brúnn og stafir bláir, sem gerið að að teksti wer blár og nærri því ósýnilegur. En, ég er bara þolinmóður og óska viðgeðamönnum alls góðs.
Ólafur Jóhannsson

Ólafur Jóhannsson, 29.7.2008 kl. 14:13

7 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

P.s.

'A að vera viðgerðarmönnum!

Ólafur Jóhannsson

Ólafur Jóhannsson, 29.7.2008 kl. 14:16

8 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Er þolinmæðin uppmáluð - hvað er annað hægt í góða veðrinu? -  en þessi kollsteypa vekur vissulega upp spurningar.  Þarf fólk að byrja upp á nýtt með útlit, myndainnsetningar, bloggvini osfrv??

Kolbrún Hilmars, 29.7.2008 kl. 18:29

9 Smámynd: Brynja skordal

Sé að rosa margir eru komnir inn með sína bloggvini aftur enginn inni hjá mér vonandi endurheimti ég þá sem fyrst slæmt að hafa þá ekki!!! en bíð þolinmóð

Brynja skordal, 29.7.2008 kl. 21:52

10 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

æ bloggvinalistinn minn datt út á síðunni minni, hann er í lagi inni á síðunni ef ég skrái mig inn. leiðinlegt

Guðrún Jóhannesdóttir, 29.7.2008 kl. 21:53

11 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

ÞÞað er ekki fyrr en á bjátar að maður gerir sér grein fyrir hversu mikilvæg þjónustan er sem þið veitið okkur.

Mínar bestu þakkir og óskir um velfarnað!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.7.2008 kl. 09:14

12 Smámynd: Brynja skordal

þar sem mér var bent á að laga bloggvinalistan gengur ekki upp hjá mér því síðan er úti kemur server error svo ekki næ ég mínum bloggvinum aftur en vonandi getið þið lagað það takk fyrir

Brynja skordal, 30.7.2008 kl. 10:03

13 Smámynd: Dísa Dóra

Ég virðist einhverra hluta vegna ekki getað bloggað ennþá og finnst það skrítið þar sem að flestir aðrir virðast getað bloggað.  Hver er ástæða þessa?

Dísa Dóra, 30.7.2008 kl. 10:37

14 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Ekki vildi ég þurfa að standa í því að gera við þetta. Þið tæknimenn og konur eruð sennilega búin að reyta hvert hár úr hausnum á ykkur. Við vitum hver þið eruð þegar þið gangið niður Laugaveginn bersköllótt 

Síðan mín varð eldrauð við bilunina og er enn eldrauð og allt snérist við. Það sem áður var vinstra megin er nú hægra megin. Ég vona bara að hún breytist aftur í milda bláa litinn sem ég var með. Eins og hjá mörgum öðrum duttu bloggvina myndirnar út og eins "heimsóknir og flettingar" sem ég sé að margir eru búnir að fá. Vona að þið moggamenn látið okkur vita þegar þetta á að vera komið í lag. Þori ekki að anda á stillingarnar mínar fyrr.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 30.7.2008 kl. 14:43

15 Smámynd: JEG

Já þetta átti að taka smá stund að laga en nei þetta eru orðnir 2 dagar. Allt í fokki bara.  Svo er verið að setja út á blogcentral og alla hina haha þetta er allt sama draslið bilar af og til.  Já líka 123 sko þeir eru ekki frítt né alltaf í lagi.

En nú má fara að koma þessu í lag bara.  Vil nefnilega fara að fá síðuna mína í lag.

Ein óþolinmóð.

JEG, 30.7.2008 kl. 15:16

16 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Ertu að grínast með frekjuna JEG.  Þeir eru greinilega að gera sitt besta.  smá þolimæði skaðar engan.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 30.7.2008 kl. 15:20

17 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Ég segi nú bara meira en frekja í JEG. Gerir fólk sér almennt grein fyrir hversu dónalegt þetta F..... er?  Vandaðu málfarið og svo sannarlega engin dama á ferðinni þarna. Vertu þolinmóð og farðu út í góða veðrið og njóttu dagsins.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 30.7.2008 kl. 17:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband