Breytingar á forsíðum blog.is og mbl.is
Miðvikudagur, 17. mars 2010
Í gær, 16. mars, var útliti forsíðu blog.is breytt og hún flutt af léninu mbl.is undir lénið blog.is. Á sama tíma var flipinn Bloggið fjarlægður úr af forsíðu mbl.is og í staðinn settur fastur hnappur neðan við tenglana á sérvefi mbl.is efst í vinstra dálki. Jafnframt var lógó mbl.is tekið úr síðuhaus blog.is.
Boxið með efni af blog.is á miðri forsíðu mbl.is helst óbreytt, og fréttatengingar við bloggfærslur virka á sama hátt og áður. Engin áform eru um að breyta þessu, og skilmálar blog.is verða áfram þeir sömu.
Tilgangurinn með þessum breytingum er fyrst og fremst að skapa betri aðgreiningu milli þess efnis sem heyrir undir ritstjórnarlega ábyrgð Morgunblaðsins og annars efnis.
Meginflokkur: Tölvur og tækni | Aukaflokkur: Birtist á blog.is | Breytt s.d. kl. 08:45 | Facebook
Athugasemdir
Þetta var nú gott.
Ég var farinn að telja mig hafa ritstjórnarlega ábyrgð á mogganum.
Billi bilaði, 17.3.2010 kl. 12:41
Voru einhverjir sem héldu að bloggskrif einstaklinga "heyrðu undir ritstjórnarlega ábyrgð Morgunblaðsins"? Það held ég varla þannig að þessi "skýring" á "tilganginum" er bara bull.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 17.3.2010 kl. 16:32
Billi bilaði, alltaf góður
Marta B Helgadóttir, 17.3.2010 kl. 17:30
Til hamingju með breytinguna - Glæsilegt!
Gunnar Helgi Eysteinsson, 17.3.2010 kl. 19:53
Eru ekki einhver ný "look" á leiðinni ???
Ásdís Sigurðardóttir, 17.3.2010 kl. 20:30
Er þá enginn lengur sem fylgist með siðferði á Moggablogginu ?
Ég man þá tíð er Árni kom og lokaði síðum sem innihéldu klám, ljótt orðbragð og þessháttar. Er það liðin tíð ?
Anna Einarsdóttir, 17.3.2010 kl. 21:16
Ef til vill ætlar Steingrímur J. (og Jóhanna) að gera eitthvað núna, svona til tilbreytni, þ.e.a.s. ef hann er bara ekki svo óttalega hundleiður á öllu saman og ákveður bara að taka sér kvíld (eða bara einfaldlega að hætta!).
Ragnar J. Jónsson, 17.3.2010 kl. 21:37
Það er svo sem gott að losna undan ritstjórnarlegri ábyrgð á Mogganum
Haraldur Bjarnason, 17.3.2010 kl. 22:01
Tek undir með Haraldi. Stórkostlegur léttir. Þessi ábyrgð var orðin býsna íþyngjandi.
Kama Sutra, 17.3.2010 kl. 22:10
Eins og öllum er ljóst þá eru það sífellt færri, sem lesa bloggið.
Enn og aftur legg ég til að á efsta svæðið (Umræðan) verði tilviljanakennt úrval (random) látið ráða hvaða blogg birtast þar.
Þannig mætti fjölga lesendum. Mér finnst ónefndum gæðingum hafa verið hampað þarna og nú þegar bloggið skal slitið frá Mogganum þá mætti taka upp frekari nýbreytni.
ÞJÓÐARSÁLIN, 18.3.2010 kl. 12:30
Anna Einarsdóttir: Umsjónarmenn blog.is sjá eftir sem áður um að notendaskilmálum blog.is sé framfylgt. Bloggararnir sjálfir gera líka almennt miklar kröfu um góðar og málefnalegar umræður í samfélaginu þeirra.
Ásdís Sig og Þjóðarsálin: Tökum ný lúkk og útfærslu forsíðu blog.is til athugunar. Allar ábendingar eru vel þegnar.
Grefill: Það má ef til vill einnig líta á þetta sem ný tækifæri fyrir sjálfstæðara blog.is
Billi bilaði, Haraldur Bjarnason og Kama Sutra: Það er gott að geta létt af ykkur þessum áhyggjum
Svo er rétt að árétta að þessar breytingarnar voru gerðar:
Hins vegar er öll virkni bloggsins með sama hætti og áður, líkt og birtingar blogga á mbl.is. Vinsamlega látið okkur vita ef þið verðið vör við annað.
Með kveðju,
Soffía Haraldsdóttir - blog.is
Soffía Haraldsdóttir (IP-tala skráð) 18.3.2010 kl. 15:07
Mig langar til að þakka þér Soffía fyrir góðar skýringar og notaleg svör.
Gangi þér vel í þínu starfi.
ÞJÓÐARSÁLIN, 18.3.2010 kl. 16:16
Ágætis mál, þó vil ég benda á eitt atriði í þessu sambandi.
"Ritstjórnarleg ábyrgð" er eitthvað sem ég hef of skrifað um. Ábyrgðin er eftir sem áður hjá kerfisstjóra blog.is og það má ekki gleymast.
Það er eðlilegt að mbl.is vilji losna undan ábyrgðinni og hef ég ekkert út á það að setja. Hitt er annað mál að blog.is getur mjög auðveldlega endað uppi sem sóðavefur ef að ritstjórnarleg ábyrgð á honum er ekki skilgreind með skýrum hætti.
Mín kerfisstjórnarkunnátta segir mér að sá sem hefur stjórntækin (kerfisstjóri) ber einnig hina endanlegu ábyrgð. Því þarf eftir sem áður að fylgjast náið með skrifum á blog.is.
Það er stórmunur milli hýsingaraðila hvernig þeir bregðast við óskum er tengjast þessu máli og er Símin með hugi.is t.d. afspyrnuslæmur og ábyrgðarlaus meðan að visir.is sem dæmisýnir mjög eðlilega og góða starfshætti í sambærilegum málum.
bkv
sandkassi (IP-tala skráð) 18.3.2010 kl. 16:36
Þið mættuð samt alveg hafa blog.is logoið efst á forsíðunni
Ónefndur (IP-tala skráð) 21.3.2010 kl. 19:26
Það er náttúrulega allt annar einstaklingur í bleikum sokkum en bláum.
Njörður Helgason, 21.3.2010 kl. 23:08
Sælir!
Er vitað hvert "metið" í innskráðum athugasemdum er?
Björn Birgisson, 9.4.2010 kl. 13:08
Já, Björn. Sú færsla sem hefur fengið flestar athugasemdir, eða 861 talsins, er þessi færsla á hallarut.blog.is.
Baldur Kristinsson, 11.4.2010 kl. 20:54
Kærar þakkir!
Björn Birgisson, 11.4.2010 kl. 21:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.